Kosning í stjórn Emblna
Frambjóðendur
Hér koma upplýsingar um þær níu frambærilegu Emblur sem hafa ákveðið að bjóða fram krafta sína til stjórnarsetu að þessu sinni. Aðalfundur verður haldinn í óvissuferðinni föstudaginn 30. apríl næstkomandi.____________________________________________________________________________ Bára Mjöll Ágústsdóttir, MBA 2004

Bára er forstöðumaður mannauðsdeildar hjá Samskipum.
Helstu áhugamál:
- Mannauðsmál allt er varðar mannfólkið í sinni víðustu mynd,
- Fjölskyldan mín
- Sumarbústaðurinn minn,
- Bókalestur
- Hreyfing og útivist
Ekkert endilega í þessari röð.
Af hverju ég hef áhuga á að sitja í stjórn Emblna?
Ég vil bjóða mig fram til góðra verka og tel að tímarnir núna kalli á okkur konur að vera virkar í því að hvetja hvora aðra til að láta raddir okkar heyrast í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi þar sem eftir er tekið.
Ég tel að við verðum að vera með sterkann vettvang þar sem við getum ráðið ráðum okkar og hvatt hvora aðra áfram til athafna. EMBLUR geta vel verið sá vettvangur.
Tímarnir núna eru þess eðlis að ef við konur náum ekki betri hlutdeild á vinnumarkaði á næstu misserum, með jöfnuði til stjórnarstarfa og annarra abyrgðarstarfa, þá mum við eiga við ramman reip að draga.
Jafnari staða kynjanna á að vera okkar helstu umræðuvettvangur og ég vil að við EMBLUR verðum sterkur talsmaður menntaðara og metnaðarfullra kvenna. Þessi vettvangur á að vera okkur innblástur og hvatning.
_____________________________________________________________________________ Belinda Theriault, MBA 2009

Belinda er sem stendur að vinna að nýsköpunarverkefni.
Helstu áhugamál:
Ég hef m.a. áhuga á dýrum, ferðalögum, framandi menningu og samskiptum menningarheima, gönguferðum og lestri góðra bóka. Ég er matgæðingur og góður kokkur sem heldur gjarnan matarboð. Hjá Rauða krossinum vinn ég sjálfboðaliðastarf, þar sem ég er mentor fyrir konur af erlendum uppruna.
Af hverju ég hef áhuga að sitja í stjórn Emblna?
Ég vil byggja á þeim góða grunni sem lagður hefur verið og halda áfram að bjóða upp á fræðandi og skemmtilega viðburði sem leyfa okkur að efla tengslanetið. En jafnframt vil ég horfa út á við, taka virkan þátt í að gefa tilbaka til samfélagsins og blanda okkur í umræður um stjórnun og hlut kvenna í atvinnulífinu, t.d. með skipulögðum greinaskrifum og þátttöku félagsmanna í fundum og ráðstefnum í nafni Emblna. Ég vil jafnframt vinna að því að koma góðum hugmyndum ykkar til framkvæmda.
____________________________________________________________________________ Birta Flókadóttir, MBA 2009

Birta starfar sem markaðsstjóri Kringlunnar.
Helstu áhugamál:
Mér finnst dásamlegt að borða humar (með hvítlauk, engifer og kóríander) og drekka hvítvín í skemmtilegum félagsskap. Að fá og framkvæma hugmyndir og fara út fyrir þægindasviðið finnst mér virkilega skemmtilegt og það að vera í tengslum við náttúruna (landið og dýrin) gleður mína sál. Ég get líka verið innipúki á náttfötunum allan daginn með góða bók, konfekt og mjólk og fundist það hrikalega gott. Ljósmyndun og hönnun höfða líka sterkt til mín og eru meðal áhugamála, ásamt hestamennskunni.
Af hverju ég hef áhuga að sitja í stjórn Emblna?
Mér hefur fundist félagsskapur Emblanna virkilega skemmtilegur og uppbyggjandi og þess vegna langar mig að bjóða mig til þjónustu reiðubúna á þeim vettvangi.
Ég er góð í að fá hugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd, sem ég tel að myndist nýtast vel í þeim fjölbreyttu viðfangsefnum sem Emblurnar takast á við. Ég hef breitt áhugasvið og starfsbakgrunn sem ég held að sé praktískt í því samhengi, en ég hef t.d. starfað sem forritari, markaðsráðgjafi, hugmynda & textasmiður, grafískur hönnuður - auk þess að hafa starfað við að rúlla upp lakkrísrúllum í lakkrísgerð, sem er auðvitað það allra praktískasta! ;-)
___________________________________________________________________________ Björg Kjartansdóttir, MBA 2009

Björg starfar við frammistöðumat hjá Ríkisendurskoðun, áður við rekstrarráðgjöf, sem sérfræðingur í Stjórnarráðinu og hjá Evrópuráðinu í Strassborg. Hún hefur líka unnið við olíuhreinsunarstöð í Noregi, á annað ár í Brasilíu sem fararstjóri, kennari og við sjálfboðaliðastörf og fyrir Rauða Kross Íslands við móttöku flóttamanna.
Ég legg mikið upp úr heilbrigðu líferni og stunda daglega langhlaup eða aðra líkamsrækt. Áhugamál mín eru einnig stjórnmál, leiðtoga- og stjórnunarfræði, hlaupaþjálfun, matargerð, útivist í náttúru Íslands og íslensk list.
Af hverju ég hef áhuga að sitja í stjórn Emblna?
Ég bý að fjölbreytum bakgrunni og áhuga á leiðtoga- og stjórnunarfræðum. Ný stjórn byggir á frábærum grunni sem lagður hefur verið og við blasa mörg ný tækifæri. Ég vil efla tengsl Embla með samblandi af fræðslu, afslöppun og gleði. Þá vil ég markaðsetja og kynna Emblurnar, í okkur býr afl sem á erindi út í samfélagið: Þekking, reynsla, menntun, nýsköpun og jákvæðni í sambland við kvenlæg gildi sem samfélagið þarf einmitt hvað mest á að halda. Rödd þessa öfluga félagskapar á mikið erindi.
__________________________________________________________________________ Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, MBA 2011

Eva starfar sem markaðsstjóri Smáralindar.
Helstu áhugamál:
Hönnun, listir, golf, veiði og að sjálfsögðu skemmtilegt fólk.
Af hverju ég hef áhuga á sæti í stjórn Emblna?
EMBLUR hafa verið með hreint út sagt frábæra stjórn. Ég tel að mín viðbót í þennan flotta hóp verði til góðs. Ég hef gríðarlega reynslu í hverskyns skipulagningu á viðburðum. Hef unnið mikið með konum, haft yfirumsjón með kvennaferðum, kvennakvöldum, fyrirlestrum svo fátt eitt sé nefnt.
Ég tel að tengslanet kvenna séu afar mikilvæg og vil stuðla að enn þéttara tengslaneti meðal MBA kvenna.
Ég er MBA 2011 og kem því inn með ferska strauma beint úr náminu sem og atvinnulífinu.
Mottó mitt í lífinu er að njóta stundarinnar. Stelpur, lífið er of stutt fyrir leiðindi ;-)
_____________________________________________________________________ Herdís Anna Þorvaldsdóttir, MBA 2011

Herdís er með eigin rekstur ásamt eiginmanni sínum, s.s.Þyrluþjónustu Íslands, Virkjun, (byggingarverktakar), Útgerðarfélag Íslands og Halastjörnu (veitingahús á norðurlandi).
Helstu áhugamál:
Ég hef áhuga á fólki og mannlegum samskiptum, menntunarmálum, heilbrigðismálum, umhverfisskipulagsfræði og listum og menningu hvers konar, þá sérstaklega byggingarlist, og Argentínskum Tangó. Ég er sunddýrkandi og laxveiðikona og mikill náttúruunnandi, hef áhuga á uppgræðslu landsins og sérstaklega mikinn áhuga á náttúrulaugum.
Af hverju ég hef áhuga á að sitja í stjórn Emblna?
Ein af áberandi sérstöðum MBA námsins eru þau persónulegu tengsl sem þar myndast og því mikilvægt að hlúa að þeim tengslum og viðhalda þeim. Emblurnar og þeirra starfsemi eru einmitt einn af þeim skemmtilegu utanaðkomandi þáttum við MBA námið í HR, sem ekki tengjast námsbókunum beint en geta haft mikið að segja við að styrkja einstaklinginn . Ég tel krafturinn í starfsemi Emblanna auki við gildi MBA námsins í HR og geti haft afgerandi áhrif á afstöðu fólks, þá sérstaklega kvenna, til námsins. Það eru því mikil verðmæti í því að halda Emblunum sterkum og frjóum.
Ég á gott með að vinna með fólki og hef mikla reynslu af viðburðarskipulagi og veislustjórnun og gaman að krefjandi verkefnum. Ég býð fram krafta mína til að viðhalda og efla starfsemi Emblanna.
____________________________________________________________________________ María Másdóttir, MBA 2010

María á og rekur Blómahönnun sem hún stofnaði árið 2002. Hún tók þátt í AUÐI í krafti kvenna og stofnaði Blómahönnun út frá því verkefni. Þegar það verkefni hætti stofnaði hún ásamt fleirum félagið AUÐUR.
Helstu áhugamál:
Eru útivera og þá af öllum toga, skíði, göngur, veiði,hjóla.... :)
Af hverju ég hef áhuga á að sitja í stjórn Emblna?
MBA námið hefur gefið mér mikið og þegar hjálpað mér á margvísilegan hátt. Mig langar að bjóða mitt framlag til stjórnarsetu í félaginu okkar þar sem ég er að ljúka námi núna í vor og er full af krafti og áhuga á að leggja mitt af mörkum í þessu frábæra félagi. Það er mikilvægt að halda tengslunum og byggja upp félag sem er að vaxa og hefur alla burði til að verða áhrifamikið á okkar fallega Íslandi.
____________________________________________________________________________ Sigrún Birna Björnsdóttir, MBA 2004

Sigrún er íslenskukennari í framhaldsskóla til 13 ára. Hún er sérstaklega þjóðleg og stundum orðhög:
Glaðlynd móðir gefin vel
Gangur lífs míns svona:
Fjallageit og garp mig tel
Geðgóð kennslukona
Af hverju ég hef áhuga á að sitja í stjórn Emblna?
Ég sat í stjórnum samfleytt í 15 ár í ýmsum hlutverkum og hafði gaman af, hef verið í hléi í nokkur ár og finnst kominn tími til að taka til við fyrri iðju að nýju.
____________________________________________________________________________ Þorbjörg Jónsdóttir, MBA 2009

Þorbjörg er að koma inn á vinnumarkaðinn að nýju í framhaldi af fæðingarorlofi. Hún hefur faglega reynslu á sviði fjármála, rekstrar, alþjóðlegra samskipta og markaðsmála.
Helstu áhugamál:
Ég er mikil fjölskyldumanneskja og nýt þess að gera uppbyggjandi og skemmtilega hluti með manni mínum og börnum. Kaffihúsaferðir, leikhús, tónleikar, göngutúrar, ferðalög og sund er meðal þess sem ég nýt hvað mest að ég tali nú ekki um gæðastundirnar og orkufundina með góðu vinkonum mínum og foreldrum.
Af hverju ég hef áhuga á að sitja í stjórn Emblna?
Að mínu mati eru Emblur gríðarlega verðmætur félagsskapur; við erum vel menntaðar, kraftmiklar konur. Mig langar að leggja mitt að mörkum til að styrkja tengsl okkar innbyrðis enn betur og auka áhrif okkar í samfélaginu. Jafnframt mun ég beita mér fyrir því að styrkja tengsl okkar við atvinnulífið/ráðningar, bæði hér á heimasíðu okkar sem og dýpka tengsl við ráðningastofur og fyrirtæki.
Ég hef alla tíð tekið virkan þátt í félagsmálum og hef setið í fjölda nefnda og ráða. Ég átti m.a. sæti í gæðaráði MBA námsins 2007-2009, átti sæti í dómnefnd ÍMARK um athyglisverðustu auglýsingar ársins 2000, var markaðsstjóri Framadaga 1998 og formaður listafélags Verslunarskóla Íslands 1993-1994.
