Úrslit kosninga
Ný stjórn Emblna
Á síðasta aðalfundi Emblna sem haldinn var þann 30. apríl var lögð fyrir tillaga að nýrri stjórn Emblna sem samþykkt var með miklum meirihluta félagsmanna. Þær Bára Mjöll Ágústsdóttir (MBA 2004), Birta Flókadóttir (MBA 2009) og Eva Dögg Sigurgeirsdóttir (MBA 2011) komu nýjar inn í stjórn. En áfram sitja; Birna Rún Gísladóttir (MBA 2006), Elínrós Líndal (MBA 2010), Gunnhildur Arnardóttir (MBA 2008 ) og Tinna Hrafnsdóttir (MBA 2007).
Sólveig Lilja Einarsdóttir (MBA 2008), Sigþrúður Ármann (MBA 2009) og Elín Hjálmsdóttir (MBA 2005) gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. Sólveig Lilja vann ötullega sem formaður félagsins á liðnu ári, Sigþrúður var viðburðarstjórnandi og löglærður ráðgjafi stjórnarinnar, Elín var ritari stjórnar. Emblur kunna þeim miklar þakkir fyrir óeigingjörn störf sín í þágu félagsins.
Það voru níu Emblur sem buðu sig fram í þau þrjú sæti er losnuðu í stjórninni og fá þær þakkir fyrir framboðið og þann áhuga sem þær sýndu stjórnarsetunni. Þátttaka í kosningunni var mjög góð, og þótti afar mjótt á munum. Enda afar frambærilegir frambjóðendur þarna á ferð.
Athygli vekur að nú eiga MBA árgangar; 2004, 2006, 2007, 2008, 2009, 2010 og 2011 stjórnarkonur úr sínum árgangi. Stjórnin þakkar góðan stuðning og frábæra þátttöku Emblna á síðasta fundi.
