Félagsgjöld vetrarins
Nýjungar

Félagsgjöld Emblna verða 4.900 kr. fyrir árið. Við vonum að Emblur verði ánægðar með þessa tölu, enda er hún talsvert lægri en félagsgjöldin voru í fyrstu. Hins vegar hefur verið ákveðið að þær sem vilja gera vel við félagið geta greitt 7.900 kr. og biðjum við allar þær Emblur sem treysta sér til að láta hærri upphæðina af hendi rakna.
Ástæðan fyrir þessum valmöguleika er sú hugmynd sem upp kom á stjórnarfundi að þær Emblur sem ekki hafa atvinnu um sakir geta leitað til stjórnar og fengið félagsgjöldin sín felld niður. Emblur vilja styðja við bakið á hvor annarri og efla félagið til að aðstoða við að finna ný og spennandi störf fyrir þær sem eru að leita sér að vinnu.
Stjórnin ætlar að virkja vefinn til þess að koma skilaboðum um spennandi atvinnutækifæri til félagsmanna og er sú vinna í vinnslu. Þær sem vilja koma upplýsingum til stjórnar tengt félagsgjöldum eða atvinnutækifærum eru vinsamlegast beðnar um að skrifa bréf til embluvefur@ru.is.
