Nýjungar í MBA námi HR
Daniel Isenberg kennir New Venture Creation

Frumkvöðlafræði er viðfangsefni sem oft ber á góma um þessar mundir. Háskólinn í Reykjavík hefur lagt sitt að mörkum í að efla frumkvöðla og nýsköpun í samfélaginu og stendur nú að Hugmyndarhúsi í samstarfi við Listaháskóla Íslands. Dr. Daniel Isenberg kenndi New Venture Creation í fyrsta sinn hér á landi um síðustu helgi og má með sanni segja að nemendur MBA námsins við HR hafi verið teknir út fyrir ákveðinn þægindarramma kennslustofunnar.
Daniel sem hefur átt farsælan feril m.a. við kennslu í bæði Harvard og nú Babson Háskóla fékk nemendur til að fara niður í Hugmyndahús og kynna sér starfsemina þar. Námskeið helgarinnar endaði á því að MBA nemendur gerðu greiningu á fyrirtækjunum sem hafa aðsetur í Hugmyndahúsi. Frumkvöðlar Hugmyndahúss voru boðnir inn í MBA kennslustofuna og þar sem þeir tóku þátt í líflegum umræðum um málefni sem tengjast því að stofna nýtt fyrirtæki í dag. Rætt var um mikilvægi viðskiptahugmynda, verðlagningar og framtíðarsýn frumkvöðla voru rædd í kjölinn. Nemendur voru almennt sammála því að námskeiðið hafi verið líflegt og lærdómsríkt.
- Dr. Daniel Isenberg hefur kennt við Harvard og nú Babson Háskóla
-Hann kenndi í fyrsta sinn New Venture MBA nemendum við HR
-Nemendur tóku út starfsemi Hugmyndarhúss
Texti: Elínrós Líndal
