Emblur Háskólans í Reykjavík

Athafnagleði Kvenna

Í Hugmyndahúsinu

12.11.2009

Þriðjudaginn 17. nóvember verður Hugmyndahús Háskólanna opið fyrir góðum hugmyndum. Hugmyndahúsið ætlar að bjóða Emblum og öðrum athafnaglöðum konum til að kynna fyrirtæki/starfsemi sína á Athafnatorgi. Rætt verður um framleiðslu en ekki síður ferðalag hugmynda þeirra kvenna sem taka þátt í umræðunni, samfélaginu öllu til framdráttar.

Á Athafnatorginu er lagt upp með að rædd verði fyrirtæki kvennanna, stofnár, mesta áskorunin, stærsti sigurinn, næsta markmið og mottó.
 
Auk umræðu á Athafnatorginu koma fram góðar konur úr atvinnulífinu sem og úr stuðningsumhverfi nýsköpunar sem verða sýnilegar til skrafs og ráðagerða.
 
Húsið opnar klukkan 20:00 og mun Þóranna Jónsdóttir frá Auði Capital stíga á stokk og lýsa því hvernig konur geta breytt heiminum og Rúna Magnúsdóttir hjá Connected- Women tekur til við að tengja.
 
Þetta er stefnumót athafnagleði, reynslu og tengslaneta. Emblur eru hvattar til að mæta. Aðgangur er ókeypis og allt sem til er ætlast er að við njótum stundarinnar og séum tilbúnar að leggja hvorri annarri lið.
 

 


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica