Háskólinn í Reykjavík
Með hæsta hlutfall kvenna að meðaltali í MBA námi sínu
Árið 2006 fékk Yale háskólinn viðurkenningu frá hinni virtu Forté stofnun (Forté Foundation) fyrir að vera einn þeirra skóla sem eru með hvað hæsta hlutfall kvenna í heiminum í MBA námi sínu. Meðalhlutfall kvenna í MBA námi víðsvegar um heiminn er 27%, í Yale voru konur 38% þeirra er stunduðu nám við skólann en samkvæmt opinberum gögnum Háskólans í Reykjavík hefur hlutfall kvenna verið að meðaltali 44,1%. Þess má geta að hlutfall kvenna í MBA námi við Háskóla Íslands er að meðaltali eitthvað lægra en í MBA 2011 árgangi eru nú yfir 50% nemenda árgangsins konur.
Háskólinn í Reykjavík hefur leitast við að hafa hlutfall kvenna og karla við MBA deildina sem jafnast enda er það hagur allra að konur mennti sig og takist á við það verkefni að leiða fyrirtæki hér á landi sem og erlendis.
Forté stofunin varð til út frá rannsókn sem gerð var á því af hverju konur væru í minnihluta í MBA námi víðsvegar um heiminn. Rannsóknin bar nafnið “Women and the MBA: Gateway to Opportunity”. Í dag vinnur Forté í nánu samstarfi við flesta af stærstu skólum Bandaríkjanna og í Evrópu, auk þess að starfa með fjölmörgum stærri fyrirtækja í því að efla hag kvenna í viðskiptum og stjórnun. Aðal markmið stofnunarinnar er að veita hæfileikaríkum konum stuðning við að mennta sig og taka að sér leiðtogastörf víðsvegar í heimi viðskiptanna.
Nánari upplýsingar um samtökin má finna á heimasíðu þeirra www.fortefoundation.org
