Emblur Háskólans í Reykjavík

,,Eflum tengslin"

Fjórði viðburður vetrarins

Arsfognudur-3

Fjórði viðburður vetrarins svokallaður ársfögnuður Emblna fór fram þann 18. febrúar í Nauthól við nýju byggingu Háskólans í Reykjavík. Fundurinn hófst stundvíslega klukkan 18:30 með kampavíni og nafnabingói, þar sem hver og ein Embla fékk bingóspjald í hendurnar með jákvæðum staðhæfingum sem þær þurftu svo að finna hver ætti. Með þessu móti fóru þær að spjalla og kynnast hvor annarri betur. Staðhæfingarnar áttu það sameiginlegt að vera eitthvað sem fáir vissu um Emblurnar, svo þarna gafst skemmtilegt tilefni fyrir spjall á léttum nótum.

Eftir að borðhaldið hófst tók Auður Eir til máls og talaði um mikilvægi þess að vera jákvæður í samskiptum. Hún talaði um trúnna í þessu samhengi og auðvitað einstaka eiginleika konunnar. Að lokum ræddi hún um leiðtoga sem sýna virðingu og samkennd í verki. Agnar Þór tók síðan til máls og fékk Emblur til að stíga út fyrir þægindarramma sinn. Hann sýndi og kenndi Emblum að sjá jákvæð tækifæri í aðstæðum sem oft kölluðu á neikvæð viðbrögð og fékk Emblur til að bregða á leik.

Að lokum tilkynnti Sólveig Lilja að nokkur sæti munu losna í stjórn Emblna og hvatti áhugasamar Emblur til að bjóða sig fram. Kosning nýrrar stjórnar mun fara fram á síðasta fundi vetrarins.

Arsfognudur-1

Gunnhildur og Birna tóku einstaklega vel á móti fyrsta gesti kvöldsins.

Arsfognudur-2

Elísabet Austmann, Unnur og Jórunn skáluðu í kampavíni, þær eru allar í MBA 2010.

Arsfognudur-20

Eins og sjá má voru gestir kvöldsins afar glæsilegir.

Arsfognudur-4

Ingibjörg tók nafnabingóinu alvarlega.

Arsfognudur-6

Það gerði hún Belinda einnig.

Arsfognudur-5

Hrafnhildur Mooney og Hafrún.

Arsfognudur-7

Emblum var raðað á borð til að efla tengslin.

Arsfognudur-11

Emblur voru óhræddar við að taka þátt í leikjum kvöldsins.

Arsfognudur-9

Kristrún, Hafrún og Hrafnhildur Mooney í leik hjá Arnari.

Arsfognudur-13

Gunnhildur og Ingibjörg.

Arsfognudur-16

Margrét Kristín Sigurðardóttir geislandi að vanda.


Texti og myndir: Elínrós Líndal.



Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica