,,Óvissuferð í bland við Aðalfund"
fimmti fundur vetrarins

Að þessu sinni var Aðalfundur Emblna haldinn í bland við óvissuferð. Emblur hittust í nýju MBA-stofunni í Háskólabyggingunni í Nauthólsvík þar sem Gísli R. Rafnsson verkefnastjóri fyrir Ístak og MBA nemi sýndi Emblum nýju bygginguna.
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir tók á móti Emblum með léttum veitingum frá Lukku í nýju MBA stofunni þar sem Aðalfundurinn fór fram. Aðalfundurinn gekk vel fyrir sig. Emblur voru virkar í opinni umræðu í lokin, þar sem fjallað var m.a. um félagsgjöldin, hlutverk Emblnanna og hvernig tengslanetið getur virkað sem best okkar á milli.
Alls 60 Emblur mættu á fundinn og stigu svo í rútu sem keyrði þær upp í Kjós. Á Hjalla í Kjós var vel tekið á móti Emblum. Grillvagninn sá um veitingarnar, sem var heilgrillaður kjúklingur með grænmeti og salati. Vífilfell styrkti Emblur með ljúffengu Vistamar Merlot hvítvíni og Sauvignon Blanch rauðvíni og Ingibjörg Valgeirsdóttir MBA-2009 sá um að hrista félagsmenn saman þetta kvöld.
Stjórnarskiptin innan félagsins munu fara fram í lok mánaðarins; þar sem þrjár nýjar Emblur koma inn í stjórnina. Emblur þakka fyrir góða þátttöku og þann áhuga sem sýndur var félaginu á síðasta aðalfundi. Sjá má skýrslu stjórnar fyrir árið á vefnum undir valhnappanum "Um Emblur".




Texti og myndir; Elínrós Líndal.
