Emblur Háskólans í Reykjavík

,,Óskráðar reglur vinnustaðarins"

Þriðji atburður vetrarins

jola-magga

Þann 10. desember síðastliðinn héldu Emblur morgunfund á Seltjarnarnesi þar sem rædd voru málefni er varða óskráðar reglur á vinnustað. Emblur áttu góða stund saman í jólalegu umhverfi og hlustuðu af athygli á Margréti Jónsdóttur tala um þetta áhugaverð málefni. Það mættu hátt í 70 Emblur, sem var afar óvænt en gleðilegt. Emblur sýndu að þær láta ekki jólaundirbúning og aukið álag í vinnunni á þessum tíma hindra sig í að koma saman.


Margrét hóf umræðuna með því að biðja allar Emblur um að standa upp og kynna sig. Þá ræddi hún staðtölur um konur og varpaði fram áhugaverðum spurningum til kvenna um hvernig málum væri háttað á þeirra vinnustað þegar kemur að reglum sem hvergi er skráðar. Í lokin fengu Emblur orðið og gátu þá talað um þær óskráðu regur sem gilda á vinnustöðum sínum. En óskráðu reglurnar ná til málefna er varða viðtekinn klæðaburð, hegðun, o.s.frv.

Sum hegðun virðist leiða til þess að fólk vinni sig áfram og upp innan fyrtækja en önnur ekki. Til að mynda virðist það ekki gefast vel að tala mikið um börn eða veikindi á vinnustöðum, en að skilja eftir jakka á stólbaki og vinna yfirvinnu ítrekað virðist vera hegðun sem er umbunuð víða. Mörg skemmtileg dæmi komu fram á fundinum og líklegast eru flestir vinnustaðir með sína tegund af óskráðum reglum sem mikilvægt er að kynna sér vel.


Fundurinn var skemmtilegt krydd inn í annars líflega umræðu vetrarins. Margrét Jónsdóttir talaði af einlægni og hreinskilni eins og henni er einni lagið og verður án efa fengin til að ræða málefni er varða konur í stjórnunarstöðum á næsta ári.

Texti og mynd: Elínrós Líndal.



Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica