Emblur Háskólans í Reykjavík

,,Árangursríkur stjórnunarstíll"

Margrét Pála og Hanna Birna á fyrsta fundi vetrarins þann 15. október

19.10.2009

E1

Fyrsti Emblufundur vetrarins sem fram fór í Ráðhúsi Reykjavíkur 15. október síðastliðinn var vel sóttur. Fjölmargar Emblur úr 2011 árgangi mættu á sinn fyrsta fund, þar sem Hanna Birna og Margrét Pála töluðu um þann stjórnunarstíl sem þær höfðu valið sér. En yfirskrift fundarins var einmitt ,,Árangursríkur stjórnunarstíll".

Margrét Pála lagði áherslu á nokkra þætti, svo sem að hafa góða yfirsýn yfir reksturinn, að hafa eldmóð í brjósti sem smitaði starfsfólk og svo þá staðreynd að góður leiðtogi þarf að vinna löngum stundum í rekstri sínum til að halda hlutunum gangandi. Emblur tóku vel í þá hugmynd Margrétar Pálu að leiðtogi sem treður slóðina í frumskógi viðskiptanna sé ekki leiðtogi nema honum fylgi þéttur hópur samstarfsfólks. Leiðtogi sem ferðast einn sé þá einungis úti að ganga.

Hanna Birna talaði um mikilvægi þess að virkja minnihlutann í samstarfi flokkanna í Reykjavík. Hún leggur áherslu á að nýta alla þá sem koma að stjórnun borgarinnar, hvort sem þeir tilheyra hennar flokki eða öðrum. Hanna Birna fékk góðar viðtökur við hugmyndum sínum og ekki síst þegar hún ræddi árangursríkar aðferðir við að skera niður rekstrarkostnað borgarinnar. Hún opnaði leiðir til að allir starfsmenn borgarinnar gætu komið sínum hugmyndum á framfæri og sparaði með því móti stórar upphæðir fyrir Reykjavíkurborg.

Sólveig Lilja framkvæmdastjóri Emblna kynnti dagskrá vetrarins og Birna Rún Gísladóttir vefstjóri www.emblur.is ræddi um hugmyndafræðina á bak við nýja Emblu-vefinn. Eftir þetta gæddu Emblur sér að veitingum frá HaPP.


E123
Margrét Pála og Hanna Birna

Emblur-1

Sólveig Lilja og Margrét Sigurðar

E7

Emblur með Margréti Jónsdóttur í fararbroddi


E2

Margrét Arna Hlöðversdóttir

E8

Auður Jóhannesdóttir mætti með þriðju stúlkuna sína

E10

Jón litli sótti sinn fyrsta fund með móður sinni Þorbjörgu Jónsdóttur


Texti: Elínrós Líndal og Birna Rún       Ljósmyndari: Elínrós Líndal


 



Viðburðir


Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica