Emblur Háskólans í Reykjavík

HaPP

Matur sem stuðlar að heilbrigði

lukkaUnnur Guðrún Pálsdóttir er ein af þessum konum sem gustar af orkan og lífsgleðin. Hún stofnaði og rekur fyrirtækið HaPP sem bíður upp á víðtækar lausnir fyrir þá sem vilja lifa heilbrigðu lífi og takast á við vandamál og kvilla með breyttu matarræði. HaPP leitast við að benda fólki á hvernig hægt er að njóta þeirra lífsgæða sem heilbrigður lífsstíll hefur upp á að bjóða.

Unnur öðru nafni Lukka hefur alla tíð haft brennandi áhuga á öllu því sem viðkemur heilsu og heilbrigði en lengi furðað sig á því hve lítið við höfum nýtt okkur náttúrulegar leiðir í heilbrigðiskerfinu okkar. ,,Eftir að hafa breytt mataræði mínu og fjölskyldu minnar til hins betra og upplifað í kjölfarið meiri orku, framkvæmdagleði og vellíðan fannst mér nauðsynlegt að deila þeirri líðan með fleirum.”

Metnaðarfull markmið

happ mynd 1Unnur lærði sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands og vann um tíma við einkaþjálfun og sá þar hvernig matarræði hafði áhrif. ,,Í einkaþjálfuninni sá ég ítrekað hvað hollur matur bætti árangur og heilsu viðskiptavina minna. Mér þótti hins vegar aðgengi að tilbúnum hollum mat ekki nægilega gott og ákvað að bæta úr þeirri þörf og stofnaði því fyrirtækið HaPP”.

Á þessum tíma var Unnur í MBA námi í Háskólanum í Reykjavík og segir það hafa haft mikil áhrif á ákvörðun sína: ,,Námið styrkti mig persónulega og gaf mér aukinn kjark og áræðni til að koma HaPP á þann stað sem ég vildi hafa það. Í náminu eignaðist ég líka góða félaga sem tóku bæði beinan og óbeinan þátt í að koma Happ á laggirnar,” segir Unnur og bætir við að það hafi í raun og veru verið eiginmaður einnar Emblu, Sólveigar Dóru Magnúsdóttur, sem eigi heiðurinn af nafni fyrirækisins.

En hvað stendur HaPP fyrir? ,,Nafnið HaPP stendur fyrir “healty and pure products” og hefur það metnaðarfulla markmið að stuðla að auknu heilbrigði Íslendinga.” Nokkrir félagar Lukku úr MBA náminu hafa líka tekið þátt í starfsemi fyrirtækisins. ,,Styrkár Hjálmarsson sér nú um bókhald fyrirtækisins og tvær Emblur, þær Auður Einarsdóttir og Gréta Hlöðversdóttir tóku að sér hönnun heimasíðu Happ www.happ.is. Þessi og önnur góð tengsl eru með því dýrmætasta sem ég öðlaðist í MBA náminu við Háskólann í Reykjavík,” segir Unnur og bætir við að Háskólinn hafi staðið vel með henni og sé einn af hennar fyrstu viðskiptavinum sem skipti miklu máli að hennar mati.

Máttur fæðunnar

Að sögn Lukku sýna yfirgripsmiklar rannsóknir skýr tengsl á milli neyslu ákveðinna fæðutegunda og tíðni sjúkdóma. ,,Hjá HaPP höfum við niðurstöður þessara rannsókna að leiðarljósi við samsetningu allra matseðla okkar og vörutegunda. Allar okkar vörur stuðla að heilbrigði þess sem neytir þeirra.” Lukka bendir á að langvinnir sjúkdómar eiga sameiginlega rót. Einkennin eru vissulega margbreytileg og meðferðir þeirra líka en það eru nokkur atriði sem tengja þessa sjúkdóma saman og leiðin til að koma í veg fyrir að þeir nái sér á strik í líkamanum er falin í lífsstíl okkar. En hvaða sjúkdóma erum við að tala um? ,,Með langvinnum sjúkdómum er átt við hjarta- og æðasjúkdóma, krabbamein, MS, liðagigt, sykursýki, Lupus, offitu, beinþynningu, heilahrörnunarsjúkdóma á borð við alzheimers, augnsjúkdóma, nýrnasjúdóma og fleira.” Lukka bendir á hvernig allir þessir sjúkdómar þrífast í bólguástandi í líkamanum. ,,Það má því segja að langvinn bólga sé sjúkdómsvænt ástand í líkamanum. Því skiptir miklu máli að skapa basískt ástand í líkama okkar til að stuðla að heilbrigði. Sýrustig í krabbameinsæxlum er t.d. súrara en í heilbrigðum vefjum líkamans. Ekki er nauðsynlegt að borða eingöngu basamyndandi mat heldur er talið gott ef 75% fæðunnar kemur úr þessum flokki,” segir Lukka.

Ennþá í mótun

Happ býður upp á fyrirlestra og fræðslu enda telur Lukka mikilvægt að veita fræðslu um það hve hollt matarræði skiptir miklu máli í nútíma þjóðfélagi. Einstaklingar, fyrirtæki og hópar hafa leitað til Lukku með góðum árangri. ,,Happ er ungt fyrirtæki og er ennþá í mótun. Við leggjum okkur fram við að hlusta á þarfir viðskiptavinarins og búa til nýjar vörur að hans óskum. Við framleiðum m.a. matarpakka sem hafa að geyma allar þær máltíðir sem þú þarft að borða á einum sólarhring. Viðskiptavinir okkar vita að þeir geta keypt hjá okkur tilbúnar maltíðir sem þeir geta verið fullvissir um að eru allt í senn, hollar, fjölbreyttar og bragðgóðar.” Lukka fær reglulega bréf frá ánægðum viðskiptavinum sem lýsa því hvernig þeir hafa náð tökum á kvillum og einkennum sem hafa plagað þá lengi. ,,Þessi bréf eru okkur mikil hvatning og auka hjá okkur bjartsýni um að við séum á réttri leið og að fleiri og fleiri séu að láta sig heilbrigt mataræði varða.” En Lukka lætur ekki þar við sitja, athygli hennar er nú hjá unga fólkinu sem virðist oft og tíðum veita skyndibitum mestan áhuga. ,,Okkur finnst vanta framboð af hollum vörum fyrir börn. Næst á dagskrá hjá Happ er því að þróa hollan, bragðgóðan og spennandi mat sem stuðlar að heilbrigði barna svo að öll fjölskyldan geti notið lífsins heilbrigð og lífsglöð.”

Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á vefsíðunni: www.happ.is


Texti: Elínrós Líndal


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica