Emblur Háskólans í Reykjavík

Ársskýrsla 2009-2010

Frá aðalfundi haldinn 30. apríl 2010

5.5.2010

EMBLUR

Félag MBA kvenna frá Háskólanum í Reykjavík

 

ÁRSREIKNINGUR 2009 – 2010

 

EMBLUR

Félag MBA kvenna frá Háskólanum í Reykjavík

 

SKÝRSLA STJÓRNAR

AÐALFUNDUR 30.APRÍL 2010

 

 

Senn lýkur þriðja starfsári EMBLNA – Félags MBA kvenna frá Háskólanum í Reykjavík. Sitjandi stjórn tók til starfa í kjölfar aðalfundar 26. maí 2009. Stjórn telur 7 konur, tvær af fyrrum stjórnarkonum gáfu kost á sér áfram en 5 nýjar komu inn í stjórn eftir kosningu. Til stuðnings stjórnar starfa tengiliðir fyrir hvern árgang,  í einhverjum tilfellum hafa nýir aðilar tekið að sér það hlutverk en hjá öðrum árgöngum hafa verið þeir sömu og áður.

 

Starfsárið 2009 – 2010 hefur einkennst af metnaðarfullu og óeigingjörnu starfi stjórnar og góðri þátttöku félagskvenna í þágu þess að byggja áfram upp öflugt félag. Lagður var góður grunnur að því starfi við stofnun félagsins og á fyrstu tveimur starfsárum þess. Markmið félagsins eru skýr, þ.e. að stuðla að fræðslu, efla tengsl og skapa spennandi vettvang til að hittast og miðla þekkingu og reynslu. Unnið hefur verið að þessum markmiðum þó einhverjar áherslubreytingar hafi átt sér stað eftir tíðaranda og breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu.

 

Í upphafi starfsársins voru lögð drög að komandi vetri. Samdóma álit stjórnar var að leggja þyrfti áherslu á að skapa vettvang á netinu til upplýsingagjafar. Það var því ákveðið að vinna að vefsíðu fyrir félagið www.emblur.is sem var formlega opnuð á fyrsta viðburði haustsins 2009. Vefsíðan er í notkun og vonir standa til að hún muni í auknum mæli nýtast EMBLUM til fróðleiks og framdráttar. Auk þess var farið yfir ýmis stefnumál félagsins án þess þó að formlegar ákvarðanir um stórvægilegar breytingar væru teknar.

Ákvörðun var tekin um að innheimta félagsgjöld fyrir árið, kr. 4.900,- til að standa straum af kostnaði tengdum vefsíðuhönnun og viðburðum. Áhersla var lögð á að stilla gjaldi í hóf sökum breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu og þess að félagsgjöld höfðu ekki verið innheimt árið áður.

 

Viðburðir á vegum EMBLNA verða fimm á árinu að meðtöldum aðalfundi og óvissuferð þann 30. apríl næstkomandi. Tímasetningar funda voru af ásettu ráði ekki alltaf  þær sömu til að gefa sem flestum tækifæri til þátttöku.

 Fyrsti viðburður var haldinn 15. október og bar yfirskriftina: „Árangursríkur stjórnunarstíll“. Þar komu fram með áhugaverð erindi Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík og Margrét Pála Ólafsdóttir, EMBLA og framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar. Annar viðburður vetrarins, hádegisfundur haldinn 5. nóvember í Háskólanum í Reykjavík bar yfirskriftina „Höfum áhrif á framtíðina“. Þar kynnti Dr. Ann Armstrong sem m.a. hefur kennt við MBA námið í HR, rannsókn auk þess sem hún sagði frá sýn sinni og reynslu varðandi samfélagslega ábyrgð. Hún hefur unnið ötullega að því að efla ungar konur til náms og sagði EMBLUM frá því með hvaða hætti hún ætlar sér að hafa áhrif til framtíðar í þessum málaflokki. Áhugaverðar umræður sköpuðust og augljóst að EMBLUR eru tilbúnar að kynna sér þessi mál betur.

Þriðji viðburður vetrar var haldinn 10. desember í heimahúsi stjórnarkonu og bar yfirskriftina: „Óskráðar reglur á vinnustað“. Með þessu var hefðbundið fundarumhverfi brotið upp, boðið var upp á heitt súkkulaði og smákökur á meðan hlýtt var á áhugaverðan fyrirlestur Margrétar Jónsdóttur, EMBLU og forstöðumanns alþjóðaskrifstofu HR þar sem hún fræddi hópinn um margar þær reglur sem gilda á vinnustöðum en hvergi standa skráðar og hvernig nýta má tungumálið sem valdatæki. Nokkur skoðanaskipti urðu um málefnið sem voru að sjálfsögðu í anda EMBLNA, sterkar skoðanir en um leið hugmyndaauðgi og gleði.


Fjórði viðburðurinn „Ársfögnuður EMBLNA“ var svo haldinn þann 18. febrúar í Nauthól, veislusal rétt við HR. Þar komu fram Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir prestur, sem miðlaði af reynslu og þekkingu um hvers virði það er að hugsa jákvætt og Agnar Egilsson leikari sem færði EMBLUM „já-ið“ í samskiptum og tjáningu.  Góður rómur var gerður að þessari vel heppnuðu kvöldstund þar sem einstaklingar úr ólíkum áttum miðluðu sinni reynslu til hópsins auk þess sem krafist var þátttöku viðstaddra í uppbyggilegum „hópeflisleikjum“.

Framundan er svo fimmti og síðasti viðburður vetrarins, „Óvissuferð“ með aðalfundi sem ekki verður farið nánar yfir hér.

 

Það er mat stjórnar að vel hafi tekist til á öllum viðburðum vetrarins. Hefur það sýnt sig með góðri þátttöku félagskvenna, áhugaverðum umræðum og svo auknum áhuga EMBLNA á starfsemi félagsins í heild.

 

Rekstrartölur og afkoma er kynnt nánar í meðfylgjandi ársreikningi fyrir starfsárið 2009 – 2010. Rekstrarárið er frá 31. mars – 1.apríl næsta árs. Tekjur eru umfram gjöld í lok rekstrarárs sem nema kr. 82.592,- og er staða eigin fjár kr. 265.049,-  Sigrún Ragna Ólafsdóttir er skoðunarmaður ársreiknings, sem og fyrri ár.

 

Félagið hefur átt gott samstarf við Háskólann í Reykjavík (HR) varðandi viðburði, opnun vefsíðu og ýmissa fyrirspurna og athugasemda sem fram koma við uppbyggingu félags sem þessa. EMBLUR þakka HR velviljann með vonir og væntingar um áframhaldandi gott samstarf.

Félagið hefur auk þess mætt miklum velvilja hjá öllum þeim fyrirlesurum sem fram hafa komið í vetur og kann þeim ásamt öðrum sem lagt hafa sitt af mörkum í starfsemina miklar þakkir fyrir.

 

Á komandi starfsári mun stjórn EMBLNA taka breytingum. Þrjár munu ekki gefa kost á sér áfram, það eru: Sólveig Lilja Einarsdóttir, sem er stofnandi, Sigþrúður Ármann sem setið hefur í stjórninni frá 2008 og Elín Hjálmsdóttir sem setið hefur eitt ár. Aðrir stjórnarmeðlimir, Tinna Hrafnsdóttir, Gunnhildur Arnardóttir, Birna Rún Gísladóttir og Elínrós Líndal munu gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Að auki hafa nú níu EMBLU-konur boðið sig fram til stjórnar næsta tímabil og mun verða úr því skorið á aðalfundi hverjir munu skipa stjórn á komandi starfsári. Eftirfarandi konur hafa boðið sig fram:

1.     Bára Mjöll Ágústsdóttir MBA 2004

2.     Belinda Theriault MBA 2009

3.     Birta Flókadóttir MBA 2009

4.     Björg Kjartansdóttir MBA 2009

5.     María Másdóttir MBA 2010

6.     Sigrún Birna Björnsdóttir MBA 2004

7.     Eva Dögg Ásgeirsdóttir 2011

8.     Herdís Anna Þorvaldsdóttir 2011

9.     Þorbjörg Jónsdóttir  2009

 

 

Það er ljóst að með góðri þátttöku, jákvæðri endurgjöf og sífellt auknum áhuga félagskvenna að félagsskapur EMBLNA er kominn til að vera.  Félagið er ungt hefur gott tækifæri til að vaxa og eflast með stækkandi hópi félagskvenna.  Fráfarandi stjórnarkonum er þakkað ötult og óeigingjarnt  starf í þágu félagsins á liðnum misserum.

Stjórn EMBLNA 2009 – 2010 þakkar öllum félagskonum og öðrum þátttakendum í viðburðum vetrarins fyrir ánægjulegar samverustundir og jákvætt viðhorf í garð félagsins.

 

Gleðilegt sumar, við sjáumst að nýju í haust á kraftmiklu nýju starfsári !

 

Stjórn starfsárs 2009 – 2010,

 

 

Birna Rún Gísladóttir

Elín Hjálmsdóttir

Elínrós Líndal

Gunnhildur Arnardóttir

Sigþrúður Ármann

Sólveig Lilja Einarsdóttir

Tinna Hrafnsdóttir

  

EMBLUR

 
ÁRSREIKNINGUR STARFSÁRIÐ 2009-2010  
           
           
REKSTRARREIKNINGUR          
           
Gjöld     Tekjur    
Aðalfundur 2009 47.460   Félagsgjöld 607.600  
1.fundur/Ráðhús 57.600   Vaxtatekjur 10.452  
2.fundur/Ann Armstrong 2.600   Styrkur frá HR 19.800  
4.fundur árshátíð 151.668        
Tengilfundur+aðrir fundir 57.980        
Heimasíðugerð + námskeið 204.998        
           
Innheimtukostnaður og vaxtagjöld 32.197        
Fjármagnstekjuskattur 757        
           
Samtals gjöld 555.260   Samtals tekjur 637.852  
           
Tekjur umfram gjöld 82.592        
           
EFNAHAGSREIKNINGUR          
           
Eignir     Skuldir    
Banki 217.642        
Inneign Valitor 47.407        
      Eigið fé:    
      Eigið fé f.f.ári 182.457  
           
      Tekjur umfram gjöld 82.592  
      Eigið fé 31.3.2010   265.049
Samtals 265.049   Samtals   265.049

 

 

 

 

 

 

 

 

 


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica