Ársskýrsla 2008-2009
26. maí 2009
EMBLUR, félag kvenna úr MBA við HR var stofnað 11. október 2007. Markmið þess er fyrst og fremst að stuðla að áframhaldandi fræðslu, koma á og efla tengsl og ekki síst skapa spennandi og skemmtilegan vettvang fyrir EMBLUR að hittast og eiga góða stund. Allar konur sem stunda nám eða hafa útskrifast úr MBA við HR eiga rétt á þátttöku. Stofnun félagsins tókst með eindæmum vel og virkar félagskonur eru liðlega 80%. Því er óhætt að segja að vettvangur sé til staðar fyrir félagið. EMBLUM kemur til með að fjölga jafnt og þétt þar sem nýjar konur hefja nám ár hvert og stendur þeim til boða að taka þátt í félaginu.
Nú er að ljúka öðru starfsári Emblna og hefur stjórnin verið skipuð sömu konum og stofnuðu
félagið að undanskilinni einni sem kom til starfa á síðasta ári. Tengslaráð er til stuðnings við
stjórnina þar sem hvert útskriftarár hefur sinn tengilið. Stjórn og tengslaráð hittast markvisst amk einu sinni á ári. Þannig skapast vettvangur fyrir EMBLUR til að koma málum á framfæri í gegnum tengilið sinn ásamt því að geta alltaf sett sig í samband við stjórnina beint eða í gegnum netfang okkar emblur@ru.is.
Stjórn félagsins hefur unnið ötult, óeigingjarnt og metnaðarfullt starf sem og áður.
Samstarfsgrundvöllur náðist við HR þar sem nú hefur félagið aðgang að verkefnastjóra ásamt áframhaldandi stuðningi og velvild skólans. Verkefnastjóri aðstoðar stjórn við undirbúning á atburðum og utanumhald á netföngum, útsendingum, heimasíðu o.fl tilfallandi. Reglulegir stjórnarfundir hafa verið allt starfsárið og var lögð töluverð vinna í undirbúning starfsársins; samstarf við HR, tengsl og skörun við alumni við HR, stefnumótun og heimasíðugerð. Vísir skapaðist að samstarfi við RUMBA þar sem markmið var að skapa félögunum báðum vettvang án þess að þau væri að taka frá hvort öðru. Emblum er mikilvægt að eiga gott samstarf við önnur alumni félög innan HR enda styður það hagsmuni okkar. Fyrir starfsárið hafði stjórnin lagt á sig ómælda vinnu til þess að bæta útlit og notagildi heimasíðu Emblna. Höfðum við fengið til liðs við okkur mæta félagskonu Sigrúnu Evu Ármansdóttur, forstjóra Eskils, sem lagði töluverða vinnu í að aðstoða okkur og kunnum við henni miklar þakkir fyrir. Endurbætur á heimasíðu var frestað fyrst og fremst vegna aðstæðna á markaði og eins kom til að HR ætlar sér að byggja upp sameiginlegan vef fyrir öll alumni félög. Ný stjórn kemur til með að taka það verkefni að móta áframhaldandi stefnu Emblna í þessum málum.
Mikill metnaður hefur verið lagður í þá fimm atburði sem félagið hefur staðið fyrir á þessu
starfsári. Stjórnin hafði það vandasama verk að standa að atburðum sem væru spennandi en um leið sem mest sjálfbærir þar sem ekki voru innheimt félagsgjöld. Er óhætt að fullyrða að vel hafi til tekist enda hafa allar í stjórninni lagt fram óeigingjarnt starf. Allir þeir atburðir sem haldnir voru hafa fengið einstaklega góða umsögn og verið vel mætt. Félaginu mætir mikill meðbyr í Háskóla Reykjavíkur enda eru hagsmunir hans bundnir við góð tengsl við nemendur. HR hefur stutt vel við bakið á félaginu með framlagi starfsmanna og styrkjum fyrir atburðina og kunnum við þeim vel þakkir fyrir það.
Fyrsti atburðurinn var ráðstefna í lok aðalfundar í april 2008 með yfirskriftinni “Þegar skóinn
kreppir” þar sem Svafa Grönfeld ásamt úrvalsfólki í panel skapaði skemmtilegar umræður um hvernig konur eiga að skapa sér tækifæri.
Annar atburðurinn var kvöldstund með Goddi, “Að hugsa út fyrir boxið” sem haldin var í október í Háskólanum í Reykjavík.. Efnið átti vel við þær aðstæður sem höfðu skapast í þjóðfélaginu og komum við fílefldar og kraftmiklar út eftir góða kvöldstund.
Næsti atburður var með óhefðbundnu sniði, morgunfundur með léttu sniði á Kaffi Tár þar sem Margrét Jónsdóttir fjallaði um áhrif framkomu og málnotkun.
Fjórði atburðurinn var kvöldstund á Rúbín þar sem félagskonur áttu kvöldstund saman þar sem áhersla var lögð á að efla innri tengsl. Guðrún Högnadóttir stýrði skemmtilegri og gagnlegri innkomu í byrjun kvölds. Guðfinna Bjarnadóttir heiðraði okkur með fundarstjórn þar sem við áttum góða kvöldstund yfir góðum mat og kynningum og léttu spjalli frá tveimur Emblum sem kynntu sprotafyrirtæki sín. Þetta var eini atburðurinn á árinu þar sem greiða þurfti fyrir þátttöku. Atburðurinn tókst með eindæmum vel og var það samdóma álit að slíkur atburður ætti að vera árlegur.
Fimmti atburðurinn er svo aðalfundurinn 2009 sem lýkur með ráðstefnunni “Auglýst eftir framtíðarsýn”.
Félaginu mætti mikill velvilji jafnt frá þeim sem héldu fyrirlestra og þeim sem buðu okkur
aðstöðu og veitingar til að gera þessa atburði eins glæsilega og raun bar vitni. Eiga allir þessir aðilar miklar þakkir skyldar fyrir rausnarlegt framlag sitt, en það eru: Háskólinn í Reykjavík, Lukka í Happ, Goddur, Margrét Jónsdóttir, Guðrún Högnadóttir og Guðfinna Bjarnadóttir.
Á síðasta aðalfundi var samþykkt að félagsgjöld skildu vera óbreytt 15.000 kr. fyrir þær sem eru útskrifaðar og 7.500 kr fyrir þær sem eru enn í námi. Félagsgjöld eiga að standa straum af rekstrarkostnaði félagsins við atburði starfsársins. Markmiðið félagsins er að efla konur sem leiðtoga, standa fyrir nokkrum atburðum á ári þar sem félagskonur hittast og eiga fræðandi og skemmtilega stund saman. Aðstæður í þjóðfélaginu hafa sett sitt mark á félagið þar sem ákveðið var í ljósi aðstæðna að innheimta engin félagsgjöld þetta árið og var einungis einn viðburður sem selt var inn á. Lögð verður fram sú tillaga á aðalfundi að félagsgjöld verði innheimt á næsta starfsári og kemur ný stjórn til með að þurfa að marka stefnu hvað þetta mál varðar og ákvarða fjárhæð félagsgjaldanna.
Rekstrarárið er frá 1.april árs og lýkur 31.mars. Annað starfsárið ber þess merki að engin
félagsgjöld voru innheimt sökum aðstæðna sem sköpuðust á markaði og var eingöngu einn
atburður þar sem rukkað var fyrir. Tekjur af þeim atburði voru umfram gjöld. Eigið fé frá fyrra
ári var töluvert og nægja til að dekka þau umframgjöld sem verða til á þessu ári. Innistæða á
banka er óveruleg og því mikilvægt að félagsgjöld verið innheimt á næsta starfsári þannig að
stjórnin geti haldið áfram á sömu braut. Ársreikningur er áritaður af endurskoðenda félagsins, Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur. Stjórnin mun leggja fram tillögu um að Sigrún verði samþykkt áfram sem skoðunarmaður fyrir komandi starfsár.
Stjórnin mun taka breytingum á næsta starfsári þar sem einungis tvær stjórnarkonur munu bjóða krafta sína fram áfram; Sólveig Lilja Einarsdóttir sem hefur starfað í stjórn frá stofnun og Sigþrúður Ármann sem starfað hefur í eitt ár. Stjórnin telur afar mikilvægt að það verði almenn vinnuregla í stjórn Emblna, að í stjórn séu alltaf að minnsta kosti tvær sem sitji áfram tvö kjörtímabil eða tvö ár og þá sé alltaf einhver í stjórninni úr hópi nemenda, bæði til að tryggja gott flæði á milli stjórna og einnig til að tryggja gott flæði til þeirra sem eru að hefja nám við MBA í HR og stunda þar nám. Á aðalfundi verður lögð fram tillaga um að þessi vinnuregla verði samþykkt en með þessu viljum við tryggja að reynsla, andi, kraftur og metnaður haldist í forystunni.
Þær sem hverfa úr stjórn eru Auður Einarsdóttir, Bryndís Emilsdóttir, Margrét (Gréta)
Hlöðversdóttir, Selma Árnadóttir og Þórey Vilhjálmsdóttir. Allar sem ein eru frumkvöðlar og
stofnendur félagsins og hafa unnið frábært og óeigingjarnt starf sem þær eiga miklar þakkir
skildar fyrir. Ánægjulegt er hversu mikill áhugi er fyrir því að bjóða sig fram í stjórn og er það
merki um að félagið hafi skapað sér sterkan grundvöll meðal félagskvenna.
Stjórnin vill enn og aftur þakka öllum þeim sem hafa komið að atburðum félagsins í vetur og eins félagskonum fyrir skemmtilegar stundir. Gleðilegt sumar og hlökkum til að sjá ykkur á nýju starfsári.
Undirritun stjórnar
Auður Einarsdóttir
Bryndís Emilsdóttir
Margrét Hlöðversdóttir
Selma Arnadóttir
Sigþrúður Ármann
Sólveig Lilja Einarsdóttir
Þórey Vilhjálmsdóttir
