Birna Rún Gísladóttir
MBA 2006 (Varaframkvæmdastýra)
Birna Rún starfar hjá Nýja Kaupþingi banka hf. Hún starfar m.a. við stefnumótun í markaðs- og kynningarmálum, aðgerðaráætlanir og skipuleggur markaðs- og kynningarefni bankans. Hún stýrir jafnframt framkvæmd markaðskannanna og hefur umsjón með styrktarmálum bankans.
Áður en Birna hóf störf hjá Kaupþingi árið 2003 starfaði hún hjá Búnaðarbanka Íslands frá árinu 1998 þar sem hún var sérfræðingur í markaðsmálum og á starfsmannasviði. Birna útskrifaðist frá Verslunarskóla Íslands með stúdentspróf árið 1994, hún tók B.Sc í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 2003, þar sem lokaritgerð hennar fjallaði um alþjóðavæðingu íslenskrar tónlistar.
Á meðal áhugamála Birnu eru tónlist, tíska, skíði, ferðalög og samvera með fjölskyldu og vinum. Birna á eina dóttur.
