Emblur Háskólans í Reykjavík

Birta Flókadóttir

MBA 2009 (umsjón með vefsíðu)

1.9.2010

Birta-floka

Birta starfar sem markaðsstjóri Kringlunnar. Meðal fyrri starfa má nefna að hún starfaði sem hugmynda- og textasmiður og síðar markaðsráðgjafi á Íslensku auglýsingastofunni, sem sérfræðingur bæði í hugbúnaðardeild og markaðsdeild Íslandsbanka, sem verkefnastjóri hjá margmiðlunardeild Góðs Fólk og við hugbúnaðargerð hjá Gæðamiðlun/Mekkano og Landsteinum Streng.  

Birta situr í stjórn Ímark, félags íslensk markaðsfólks og stjórn Handverks og hönnunar.

Birta er með B.Sc. í tölvunarfræði með viðskiptafræði sem aukagrein, auk MBA.

Meðal áhugamála Birtu má nefna hestamennsku, sjálfseflingu, lestur góðra bóka, humarát, ásamt því að prófa nýja og skemmtilega hluti til að víkka sjóndeildarhringinn. Birta á einn dásamlegan son. 


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica