Elínrós Líndal
MBA 2010 (umsjón með vefsíðu)

Elínrós er sjálfstætt starfandi þar sem hún er eigandi og forstjóri framleiðslufyrirtækisins ELLU ehf. Fyrirtækið sérhæfir sig í kvenlegum vinnufatnaði fyrir konur sem framleiddur er í Evrópu. Elínrós er einnig í stjórn Valíant ehf sem er fyrirtæki á sviði hestaræktunar.
Á árunum 2003 – 2006 starfaði Elínrós sem blaðamaður m.a. hjá Morgunblaðinu þar sem hún ritstýrði Málinu, tímariti fyrir ungt fólk. Þar áður sinnti hún verkefnastjórnun fyrir blaðið í sölu- og markaðssetningu á aukablöðum Morgunblaðsins; Tímariti Morgunblaðsins, Lifun og M. Hún sá um fjölmörg myndaverkefni fyrir Tímarit Morgunblaðsins og skrifaði greinar um tísku og hönnun í blaðið. Elínrós var í Verzlunarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 1994. Hún er með BA-próf í Sálfræði frá Háskóla Íslands með fjölmiðlafræði sem aukagrein.
Elínrós er virkur þátttakandi í UNIFEM og starfar sem ráðgjafi samtakanna um þessar mundir. Á meðal verkefna sem hún hefur unnið fyrir UNIFEM er Fiðrildasöfnun samtakanna en í því verkefni var Elínrós fjáröflunarstýra. Elínrós á þrjú börn og hefur brennandi áhuga á flestu því sem tengist íslenska hestinum.
