Emblur Háskólans í Reykjavík

Tinna Hrafnsdóttir

MBA 2007 (Viðburðastjórnandi)

15.10.2009

Tinna-saeta

Tinna er leikkona og hefur starfað við listgreinina frá árinu 2002. Hún hefur leikið fjölda hlutverka, í leiksýningum, söngleikjum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum og má þar nefna aðalhlutverk í kvikmyndinni Veðramót eftir Guðnýju Halldórsdóttur en hún hlaut tilnefningu til Edduverðlauna Íslensku kvikmynda- og sjónvarps-akademíunnar sem besta leikkona í aðalhlutverki árið 2007.

Tinna fór með stórt hlutverk í spennuþáttaröðinni Hamrinum sem sýndur var í Ríkissjónvarpinu nú í haust og stendur að uppsetningu leikritsins Fyrir framan annað fólk  í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Tinna hefur töluverða reynslu af starfi sjálfstæðra leikhópa, bæði sem þátttakandi og stofnandi. 

Tinna var í Menntaskólanum við Hamrahlíð og lauk þaðan stúdentsprófi árið 1995. Hún stundaði nám við Heimspekideild Háskóla Íslands á árunum 1996-1998 og útskrifaðist með BFA í leiklist árið 2002 frá Leiklistardeild Listaháskóla Íslands. Helstu áhugamál hennar eru fólk, ferðalög og allt sem viðkemur sköpun.


 

Leita


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica